Þegar ég kom heim áðan var löngunin í nýbakaðar skonsur öllu yfirsterkari.
Smá hveiti og smjör og sitthvað fleira. 15 mínútur og allt er tilbúið. Ostur og sulta. Og maður minn, sultan er æði. Nýgerð rifsberjasulta a la tengdó.
2 ummæli:
Nafnlaus
sagði...
Skonsur...
Vá hvað þessar eru fallegar. Ég vildi að ég gæti bakað skonsur á 15 mínútum. Einhver sagði að skonsur væru sígildar, fljótbakaðar og alltaf ljúfengar og góðar, bæði nýjar með kaffinu eða sem nesti, með góðu áleggi. Ég get tekið undir það. Annar sagði að það væru til margar útgáfur af skonsum og sýndi mér útgáfu frá Noregi.
Nú svo eru auðvitað enskar skonsur eða réttara sagt skoskar skonsur, því ég held að skonsur séu upprunalega frá Scone í Skotlandi.
Sagt var að hæfileikar húsmæðra í Skotlandi væru metnar eftir gæðum skonsanna, sem þær bökuðu.
Einfaldleiki...
Hvað er einfalt og hvað er flókið? Er einfalt að baka skonsur? Það má eflaust rökræða það heila kvöldstund og þá dettur mér í hug lag sem ég heyrði nýlega sem ég hef alltaf haldið uppá, svona þegar ég man eftir því.
"Because the world is round it turns me on Because the world is round...aaaaaahhhhhh
Because the wind is high it blows my mind Because the wind is high......aaaaaaaahhhh
Love is old, love is new Love is all, love is you
Because the sky is blue, it makes me cry Because the sky is blue.......aaaaaaaahhhh
Aaaaahhhhhhhhhh...."
Einhver sagði:
"I think this song must be rated on highest position in best songs of all time!"
2 ummæli:
Skonsur...
Vá hvað þessar eru fallegar. Ég vildi að ég gæti bakað skonsur á 15 mínútum. Einhver sagði að skonsur væru sígildar, fljótbakaðar og alltaf ljúfengar og góðar, bæði nýjar með kaffinu eða sem nesti, með góðu áleggi. Ég get tekið undir það. Annar sagði að það væru til margar útgáfur af skonsum og sýndi mér útgáfu frá Noregi.
Nú svo eru auðvitað enskar skonsur eða réttara sagt skoskar skonsur, því ég held að skonsur séu upprunalega frá Scone í Skotlandi.
Sagt var að hæfileikar húsmæðra í Skotlandi væru metnar eftir gæðum skonsanna, sem þær bökuðu.
Einfaldleiki...
Hvað er einfalt og hvað er flókið?
Er einfalt að baka skonsur?
Það má eflaust rökræða það heila kvöldstund og þá dettur mér í hug lag sem ég heyrði nýlega sem ég hef alltaf haldið uppá, svona þegar ég man eftir því.
"Because the world is round it turns me on
Because the world is round...aaaaaahhhhhh
Because the wind is high it blows my mind
Because the wind is high......aaaaaaaahhhh
Love is old, love is new
Love is all, love is you
Because the sky is blue, it makes me cry
Because the sky is blue.......aaaaaaaahhhh
Aaaaahhhhhhhhhh...."
Einhver sagði:
"I think this song must be rated on highest position in best songs of all time!"
Hver getur ekki tekið undir það?
Skonsur eru æði. Og einfaldari bakstur er ekki til. Þú ættir bara að prófa einhvern tímann. En ég skal segja þér að sultan er aðalatriðið.
Skrifa ummæli