fimmtudagur, 18. mars 2010

Merkisdagur

Í dag er sjötugasti og sjöundi dagur ársins.

Það er vor í lofti og fimm stiga hiti.
Og orðið albjart löngu fyrir klukkan átta.

Og ég skrifa færslu númer 100.
Sem er mun meira en ég bjóst við að endast.

Fyrir flesta er þetta þó ekkert merkilegur dagur. Bara dagur eins og í gær.

Og þó...
... Queen Latifah er fertug í dag og Vanessa Williams 47 ára - en það er ekki það.

Það er ekki þess vegna sem dagurinn er merkilegur.
Í dag er nefnilega 21 ár síðan ég gifti mig.

Það finnst mér dálítð merkilegt.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með þennann merkisdag og ég vona að þau verði allavega 21 ár í viðbót eða meira. :)

Kv. IS

Anna sagði...

Takk fyrir það IS

Nafnlaus sagði...

já til hamingju með daginn og ekki síst færslurnar ;) ...verður ekki eins haldið uppá færslu nr. 200 ??
B

Anna sagði...

Hja það væri náttúrulega mjög viðeigandi :-)