sunnudagur, 13. júní 2010

Handavinna pandavinna

Ég er nú dálítið að endurskrifa söguna og bæta inn í það sem vantar uppá vikulega handavinnusýningu.
Þessi viskustykki tilheyra sem sagt júnímánuði.

Ég sá frábæran möguleika á að nýta efni (í algjörlega ónothæfum lit) í viskustykki.
En úr þessu koma fínustu stykki - ég skal sko segja ykkur það.

Ég veit ekki hvort til er standardstærð á viskustykkjum en ef svo er þá myndi ég halda að það væri ca. 50 x 70 cm.
Stærðin á mínum fer dálítið eftir því hvað ég á mikið efni - hja það segir sig kannski sjálft.
Ég er ekkert voðalega nákvæm með það.

En mikið ægilega er ég ánægð með mig...
...og minnkandi lager.

Engin ummæli: