Og svalirnar okkar snúa í suður.
Við systur byrjuðum því daginn á því að sóla okkur og lesa.
Strákarnir voru inni - en þeir deila ekki þessum sólaráhuga.
Við náðum líka að gera heilmikið af 'to do' listanum.
- fara í sund
- kaupa Brynjuís
- skoða Nonnahús
- fara í jólahúsið
- og Vin
Og þar að auki fórum við á kaffihús.
En hér fæst þvílíkt góður frappi.
Kaffihús eru eiginlega skylda þegar maður er á ferðalagi.
Og svo bjuggum við til ææðislegt kjúklingasalat í kvöldmat.
Kvöldið var rólegt, enda partýdrengirnir á neðri hæðinni aðeins farnir að slappast.
2 ummæli:
Ljúfa líf á ykkur, smá öfund hérna megin. Njótið sólarinnar
B
Jamm þetta er ljúft líf. En nú er sólin komin til ykkar. Velbekomme.
Skrifa ummæli