Komum seint í gær og okkar biðu þrjár ungar manneskjur í tandurhreinni íbúð og buðu upp á bolludagsbollur. Mm ekkert smá notalegt. Þau eru nú alveg ótrúlega dugleg þessir krakkar mínir.
Á meðan við vorum í burtu gekk auðvitað allt eins og í sögu - og ég er farin að halda að við séum eiginlega óþörf. Þau hafa hins vegar af því áhyggjur að við eigum aðra fjölskyldu í London og séum þar af leiðandi svona mikið þar.Við tókum upp úr töskum í gærkveldi og þvottavélin hefur verið í aksjón frá því að við opnuðum augun. Það er enginn smá þvottur sem safnast upp á örfáum dögum og það þó að fröken B. hafi skellt í einstaka vél á meðan við vorum í burtu.
Ingó er farinn í vinnuna en ég er í vetrarfríi og mín bíður stafli af dagblöðum og alvöru kaffi. Mmm.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli